Afþreying
Héðan frá Steinsholti er mjög stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands.
Það tekur 25 mínútur að aka í Þjórsárdal þar sem margt er að skoða. Má þar nefna Háafoss, Hjálparfoss, Gjána og Stöng þar sem er rústir landnámsbæjar hafa verið grafnar upp. Þá er ótalinn Þjóðveldisbærinn sem er glæsileg eftirlíking af landnámsbæ.
Í Þjórsárdal er einnig hægt að fara í sund í sérstæðri sundlaug, sem stendur ein sem vin í svörtum sandinum. Stutt er héðan að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum. Sundlaug er í Árnesi, sem er í 4 km fjarlægð frá Steinsholti. Golfvöllur er á Flúðum, í 20 km fjarlægð.
Hér eru einnig frábærar gönguleiðir sem hægt er að ganga, á hvaða tíma árs sem er. Auk þess er að sjálfsögðu hægt að fara á hestbak á öllum árstímum.





