Gönguleiðir

Steinsholt er staðsett miðsvæðis í Gnúpverjahreppi. Jörðin er stór og snýr að mestu mót austri. Ekki sést til margra bæja frá sjálfu bæjarstæðinu. Hæðir og holt skyggja á til allra átta, nema til suðurs þar sem, í góðu veðri, má sjá allt til Vestmannaeyja.

Hægt er að fara í bæði langar og stuttar gönguferðir frá bænum og opnast þá víða gott útsýni.

Ekki þarf að ganga langt til að komast á þann stað þar sem Ásgrímur Jónsson listmálari sat þegar hann málaði Heklumynd sína sem sjá má á Listasafni Íslands. Ef fólk vill fara í lengri gönguferð þá mælum við með Hlíðarkistu. Þaðan opnast stórkostlegt útsýni, ef skyggni leyfir; Esjan, Flúðir, Stóra-Laxá, Geysir, Jarlhettur, Langjökull, Hekla, Eyjafjallajökull, Tindfjallajökull, Þríhyrningur, Þjórsá, Vestmannaeyjar og margt fleira má þar líta.

Ef skyggni bíður ekki upp á „fjallaútsýnisferðir" má í staðinn halda sig á láglendinu. Ef gengið er upp með Kálfá má finna gljúfur þar sem áin hefur brotið sig í gegnum bergið í z-laga farvegi. Bæði er fallegt að skoða gljúfrið ofan frá en einnig er hægt að ganga ofan í því (þó með varúð).

Rúmlega tugur tófta finnst í landareign Steinsholts. Þetta eru leyfar af gömlum gripahúsum frá Steinsholti og fyrrum hjáleigum. Fyrir þá sem áhuga hafa á búskaparsögu getur verið fróðlegt að skoða þessar tóftir. Sumar þeirra eru frá 19. öld en aðrar frá fyrri hluta 20. aldar. Hægt er að skoða þessar tóftir í bæði stuttum og löngum gönguferðum.

Fyrir þá sem vilja sjá dýr í gönguferðum má benda á hrossahópinn sem gengur frjáls um úthagana allan ársins hring. Á sumrin má líka rekast á fjár- og nautgripahópa (kvígur og kálfa). Að ógleymdum fuglunum; hröfnum, maríuerlum, þröstum, rjúpum og spóum, svo aðeins fáir séu nefndir.