Steinsholt spesial 2012
Steinsholts speceal Nyhet
Þessi ferð er tíu dagar þar af átta reiðdagar í fallegu landslagi þar sem meðal annars er riðið meðfram Heklu hringinn í kringum Tindfjallajökul og rétt hjá Eyjafjallajökli. Öll ferðin er í jaðri hálendisins og hluti af henni er í byggð, reiðleiðirnar eru oftast mjög skemmtilegar og þess vegna hægt að leifa hrossunum að njóta sín. Dagleiðirnar eru frá 30 km á dag uppí 54 km sem er lengst dagurinn, alls er ferðin um 325 km, fólk þarf því að vera góðu formi til að koma í þessa ferð. Gist er í svefnpokagistingum nema í Steinsholti þar sem eru uppábúinn rúm.
Dag fyrir dag
Dagur 1.
Þátttakendur í þessari ferð eru sóttir til Reykjavíkur um kl 18 og farið í Steinsholt, þar sem hópurinn snæðir saman kvöldverð og farið er yfir ferðaplanið. Á eftir er upplagt að skella sér í heita pottinn og slaka á í upphafi ferðar.
Dagur 2.
Haldið er af stað frá Steinsholti um morgunninn og haldið af stað upp Þjórsárdalinn sem er mjög fallegur og með góðum reiðleiðum. Um nóttinna gistum við í Hólaskógi sem er góður skáli með sturtu og öllu tilheyrandi. Vegalengd þennan dag er um 38 km.
Dagur 3.
Úr Hólaskógi er farið í Galtalæk um Áfangagil og niður með Ytri-Rangá sem liggur fram með eldfjallinu Hekl, fyrri hluta þessa dags er farið yfir hraun en seinni parturinn er góður reiðvegur. Gistingin í galtalæk er góð og þar er hægt að komast í sturtu. Vegalengd þennan dag er um 30 km..
Dagur 4.
Við höldum áfram að ferðast meðfram Heklu og höldum frá Galtalæk að eyðibýlinu Koti á Rangárvöllum og að gömlu eyðibýli sem heitir Foss þar sem við gistum um nóttina, þessi dagur bíður uppá skemmtilegar reiðleiðir í fallegu umhverfi. Gistingin á Fossi er frekar þröng og ekki hægt að komast í sturtu, en staðurinn er mjög skemmtilegur mikil kyrrð og náttúrufegurð. Vegalengd þennan dag er um 36 km.
Dagur 5.
Við leggjum af stað eftir Fjallabaks leið syðri að Hungursfit þaðan að Króki við Markarfljót og síðan fram með því í móts við Eyjafjallajökul í Eynhyrning þar sem við gistum um nóttina. Þennan dag förum við á bak við Torfajökull og er þessi dagur fullur af náttúrufegurð og ágætum reiðleiðum. Það er ágætis gisting í Eynhyrning en ekki sturtur. Vegalengd þennan dag er um 54 km.
Dagur 6.
Það er haldið áfram að ferðast með Markarfljóti og haldið niður Fljótshlíðina að Goðalandi þar sem við gistum um nóttina. Fljótshlíðin er gott landbúnaðarsvæði og sögustaðir Njálssögu eru margir á þessum slóðum en Njálssaga en ein frægasta fornsaga Íslendinga. Vegalengd þennan dag er um 30.km.
Dagur 7.
Úr Fljótshlíðinni höldum við fyrir framan Þríhyrning yfir á Rangárvellina framhjá Gunnarsholti yfir Ytri-Rangá að Hrólfstaðahelli þar sem við gistum um nóttina í ágætri aðstöðu með heitum potti og sturtum. Þennan dag er að mestu leiti ferðast um í byggð. Vegalengd þennan dag er um 40 km.
Dagur 8.
Um morguninn er lagt af stað upp með Ytri-Rangá í Réttarnes og þaðan haldið í Skarfanes og riðið með Þjórsá í Áfangagil þar sem við gistum um nóttina í ágætum skála en þar er ekki sturta. Þetta er skemmtilegur dagur með góðum reiðleiðum. Vegalengd þennan dag er um 40 km.
Dagur 9.
Þetta er síðasti dagurinn á hestbaki í þessari ferð, leiðinn liggur í Hólaskóg og þaðan fram Þjórsárdalinn í Steinsholt þar sem ferðin endar, þetta er skemmtilegur dagur með góðum reiðleiðum. Vegalengd þennan dag er um 45 km.
Dagur 10.
Þennan dag er fólk keyrt til Reykjavíkur á flugrútuna eða á aðra þá staði sem fólk vill dvelja á þar.
Dagsetning 19 Júni til 28 Júni Verð 1.850 € 8 plasser igjen





